Bjargey Ólafsdóttir býr og starfar að list sinni í Reykjavík. Hún nam myndlist og ljósmyndun við Myndlista og handíðaskóla Íslands sem og Myndlistarakademíuna í Helsinki. Einnig nam hún kvikmyndagerð við Binger Filmlab í Amsterdam.

Listsköpun Bjargeyjar Ólafsdóttur er ekki bundin við einn listmiðil heldur velur hún sér þann miðil sem henni finnst henta hugmyndinni best hverju sinni. Bjargey fæst við kvikmyndagerð, hljóðverk, gjörninga, teiknar, málar og ljósmyndar.

Mörg verka hennar segja sögur. Þau segja til að mynda sögur af Tannlæknum sem leiðist, rokkstjörnum í Japan og konum sem geta skyggnst inní framtíðina og handanheims. Verk hennar eru stundum ískyggileg og þau eru oft ísmeygileg og fjörug. Sum verka hennar eru súrrealísk og eru hlaðin táknum sem virðast hafa komið til listamannsins í draumi eða þegar hann var á milli svefns og vöku. Verk Bjargeyjar leika sér þannig að því sem við teljum gefið, þau dansa á línunni á milli raunveruleika og skáldskapar.

Bjargey var tilnefnd til ljósmyndaverðlaunanna Deutsche Börse Photography prize og the Godowski Colour photography Award fyrir ljósmyndaseríu sína Tíru sem hún sýndi í Ljósmyndasafni Reykjavíkur árið 2009. Bjargey hefur undanfarin ár sýnt list sína hér heima og erlendis. Til að mynda á Listasafni Reykjavíkur, Kunstverein Munich, KunstWerke Berlin, Galeria Traschi, Santiago Chile, XYZ Collective, Tokyo, Japan og BRAC í New York.

Hér er hægt að nálgast ferilskrá Bjargeyjar.

www.siebenachtneun.de/bjargey