Samtímaljósmyndun frá ýmsum sjónarhornum

Í bókinni “Fegurðin er ekki skraut” fjalla átta listfræðingingar, sýningastjórar og aðrir fræðimenn um íslenska samtímaljósmyndun út frá ólíkum sjónarhornum og setja í samhengi við alþjóðlega strauma í ljósmyndun, myndlist, heimspeki og listasögu. Í bókinni er jafnframt að finna fjölda ljósmynda eftir marga helstu ljósmyndara landsins.Samtímaljósmyndun er mikilvægur og áhrifaríkur þáttur í íslenskum myndlistarheimi. Ljósmyndun sem hefur það að markmiði að vekja til umhugsunar, hreyfa við, breyta, rugla okkur í ríminu eða endurspegla gildismat og sýn okkar á heiminn, miðla hugmyndum og jafnvel afstöðu til lífsins og samfélagsins sem við erum hluti af. Ritstjórar eru Sigrún Alba Sigurðardóttir, menningarfræðingur og dósent við Listaháskóla Íslands, og Æsa Sigurjónsdóttir, listfræðingur og dósent við Háskóla Íslands. Bókin er gefin út í samvinnu við FÍSL, Félag íslenskra samtímaljósmyndara.Fegurðin er ekki skraut er 328 blaðsíður að lengd. Eyjólfur Jónsson hannaði innsíður og braut bókina um og Studio Studio sá um kápuhönnun.