Ljósmyndadagar fara fram 9. – 12. febrúar og verður fjölbreytt dagskrá í boði. Ljósmyndasýningar verða settar upp í miðbænum eins og á Lækjartorgi, Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnarbíói og Sundhöll Reykjavíkur. Ljósmyndasýning í boði ljósmyndahátíðarinnar Voies Off, sem haldin er í Arles í Frakklandi, verður á Kex hostel og mun listrænn stjórnandi hennar Christophe Laloi opna sýninguna. […]
Fréttir / News
Bergmál / Echo
Í Bergmáli, sem nú er til sýnis í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, bræðast saman verk tveggja kvenna; Charlottu Maríu Hauksdóttur og Sonju Thomsen. Sonja kemur frá Bandaríkjunum en þær námu báðar við San Francisco Art Institute og útskrifuðust samtímis árið 2004. „Viðfangsefnið er tíminn og endurbirting hins liðna og má segja að titillinn vísi ekki aðeins til […]
Equivocal eftir Katrínu Elvarsdóttur
Í ljósmyndaröðinni Equivocal eru sagðar margar samhliða sögur. Heimilið er griðarstaður leyndardóma þar sem angurvær stemmning ríkir í hversdagslegri en óraunverulegri kyrrð. Myndirnar eru teknar á Íslandi og Ítalíu, Ungverjalandi og Póllandi en virðast frá landi sem ljósmyndarinn hefur uppgötvað handan við forhengi raunveruleikans. Katrín Elvarsdóttir (f. 1964) útskrifaðist með BFA gráðu í ljósmyndun frá […]
Án vegabréfs – Ferðasögur eftir Einar Fa
Flestir staðir heimsins eru á einhvern hátt frásagnarverðir en á sumum stöðum birtist saga mannkyns svo skýrt að hún getur setið fyrir á ljósmynd. Á ferðum sínum undanfarna áratugi hefur Einar Falur Ingólfsson elt uppi þessa staði. Hann myndar rústir Tvíburaturnanna á meðan enn rýkur úr þeim í september 2001. Hann siglir um Yangtze-fljót rétt […]
Ný náttúra / Frontiers of Another Nature
Í fyrsta sinn er hér safnað saman á eina bók myndum sem segja sögu íslenskrar landslagsljósmyndunar síðustu eina og hálfa öld. Með innsæi og skopskyn að leiðarljósi teflir ljósmynda- fræðingurinn Celina Lunsfordsaman verkum 50 íslenskra ljósmyndara og skapar kraftmikla og áræðna blöndu. Ísland er í augum heimsins „land landslagsins“. Náttúruljósmyndun samtímans snýst hins vegar ekki […]