Samsýning Félags Íslenskra samtímaljósmyndara í Miklagarði á Höfn. Á sýningunni verða nýleg verk ásamt verkum í vinnslu eftir 22 ljósmyndara í FÍSL og því frábært tækifæri til að sjá hvað er að gerast í íslenskri samtímaljósmynun í dag. Á opnuninni munu Biggi Hilmars og María Kjartans flytja nokkur lög af plötu sinni sem væntanleg er […]
Fréttir / News
Ljósmyndahátíð Íslands 2016 / The Icelan
/English below/ Ljósmyndahátíð Íslands fer fram með pompi og prakt í þriðja sinn dagana 14.-17. janúar. Meðal viðburða eru ljósmyndasýningar, sýningaspjöll, fyrirlestur, ljósmyndarýni og bókakvöld. Á síðu Ljósmyndasafns Reykjavíkur er hægt að kynna sér dagskrána og rýnendur ljósmyndarýninnar en enn eru nokkur pláss laus fyrir áhugasama: ljosmyndasafnreykjavikur.is Hér má sjá dagskrá hátíðarinnar á PDF-formi: Dagskrá-Ljósmyndahátíð-Íslands […]
Verðlaunuð af LensCulture
Agnieszka Sosonowska hefur verið verðlaunuð af LensCulture en sería hennar In My Back Yard hlaut verðlaun í flokki persónulegra frásagna í Visual Storytelling Awards 2015. Við óskum henni til hamingju en tilvalið er að kynna sér seríuna og verðlaunin hér: www.lensculture.com
Iceland Photo EXPO
Dagana 23.-24. október 2015 standa Ljósmyndarafélag Íslands og Blaðaljósmyndarafélag Íslands saman að stærstu ljósmyndaráðstefnu sem haldin hefur verið hérlendis á Grand Hóteli í Reykjavík. Búið er að fá fjölda erlenda og innlendra fyrirlesara og verður ráðstefnan haldin að mestu í þremur sölum þar sem fyrirlestrar verða og allir sem áhuga og eða atvinnu hafa af ljósmyndun að […]
Rökkur – Nuit des images
Rökkur er skyggnusýning sett saman af Katrínu Elvarsdóttur með myndum frá 7 meðlimum FÍSL: Spessa, Daniel Reuter, Hallgerði Hallgrímsdóttur, Einari Fal Ingólfssyni, Báru Kristinsdóttur, Katrínu Elvarsdóttur og Pétri Thomsen. Rökkur sendir áhorfandann í leyndardómsfullt ferðalag um íslenska sveit þar sem náttúran mætir hinu manngerða. Sýning myndanna fer fram laugardaginn 27. júní á Nuit des images í […]
ÍSÓ 2015
Ljósmyndasýningin ÍSÓ 2015 er viðamikil sumarsýning félagsmanna Félags íslenskra samtímaljósmyndara, FÍSL. Sýningin opnar laugardaginn 20. júní og verður opin til 11. júlí í gömlu rækjuversmiðjunni að Sindragötu 7 á Ísafirði. Listamennirnir koma víðsvegar af landinu og eru verkin af ýmsum toga en eiga það sameiginlegt að vera ný, sköpuð á árunum 2014 eða 2015. FÍSL […]
Enginn staður í Hafnarborg
13. júní opnaði sýningin Enginn staður í Hafnarborg. Hún samanstendur af verkum átta listamanna sem allir beina sjónum sínum að íslenskri náttúru. Þau eru Björn Árnason, Claudia Hausfeld, Daniel Reuter, Edda Fransiska Kjarval, Ingvar Högni Ragnarsson, Katrín Elvarsdóttir, Pétur Thomsen og Stuart Richardson og eiga það öll sameiginlegt að nota ljósmyndina sem miðil. Sýningarstjórar eru […]
Listamannaspjall: Chris Sims
Listamannaspjall í Ljósmyndasafni Reykjavíkur 15. júní kl. 17-18. Bandaríski ljósmyndarinn Christopher Sims hefur frá árinu 2005 tekið myndir af uppsettum íröskum og afgönskum þorpum á æfingasvæði bandaríska hersins sem og myndir af daglegu lífi á herstöð hersins í Guantanomo á Kúbu. Mánudaginn 15. júní kl. 17 býðst gestum safnsins að hlýða á Christopher segja frá […]